jæja þá eru bara 2 dagar í ferðina okkar
sem við höfum beðið eftir í svo marga marga daga.
Farin að huga að því hvað á að taka með. Hvað
tekur maður með í svona ferð ??? endalaust af æfingatoppum, bikiní,
gjaldeyri, passa, takkaskó....og restin reddast ef maður hefur
gleymt einhverju !!! hehe 
En undanfarnir dagar hafa verið vel bókaðir....og
vonandi lagast það þegar við erum búin í þessari ferð þar sem þá er
allavega vinnan búin við allar þessar fjáraflanir. En þetta hefur
gengið mjög vel hjá okkur. Allir vel skeindir hérna í kringum okkur
og saddir af fiskirúllum, pökkuðu jólapökkunum vel inn og losuðu
sig við dósir til okkar
takk yrir það.
Tóta er úti núna og er að bralla eitthvað
skemmtilegt ....spurning hvað það er enda liggur algjör leynd yfir
því sem hún er að bralla skvísan. hummm......En vonandi fáum við
gott veður....væri sko alveg til í það....vonandi ru veðurguðirnir
að lesa bloggið mitt reglulega 
Hef verið að spá í ýmsu undanfarið :
-af hverju getur fólk ekki aðeins vandað sig við
að leggja í stæði
lítill bíll þarf ekki 2 stæði !!! Þoli ekki
svona tillitsleysi 
-af hverju eru ekki 5 kr frímerkin
lítil.....alltaf verið að hækka póstburðargjaldið og ég hef ekki
undan að bæta 5 kr við frímerkin sem ég á og þau eru huge !!!
jafnstór og hin 55 kr...spurning um að fara að nota stærri umslög,
eða fá minni frímerki.
-af hverju er maður svo vanafastur að maður
verður alltaf að vera á "sínum" stað í búningsklefanum
-af hverju er ekki bara ein mynt í öllum
heiminum....þá værum við laus við þetta gjaldeyriskaupa og sölu
rugl. Það sem þú kaupir núna getur kostað miklu meira eða minna í
næsta mánuði fyrir okkur en kostar alltaf það sama úti
Evru eða
dollar á öll lönd.
-af hverju má ekki taka frá sæti í flugvél fyrir
hópa ef þeir eru að ferðast saman ? Var einu sinni hægt.
-af hverju ...af hverju.... af hverju....svona er
þetta líf.....
Vil svo þakka fyrir amfæliskveðjurnar allar sem
ég fékk bæði hérna á síðunni, með sms um og á fabio.
Ferðinni heitið til Spánar á laugardaginn og skil
ég eiginmanninn eftir með börnin. Bíst við að matseðillinn verði
egg, beikon, hamborgarar, pulsur og fleira skemmtilegt.
Kveðja
Húsmóðirin sem er á leiðinni í
æfingarferð.